Tillaga

VinningstillagaAlda · 0426052

Tillagan fékk 110,4 stig af 130 mögulegum.

Umsögn dómnefndar

Mannvirkið er látlaust en jafnframt kröftugt. Brúin virkar einföld við fyrstu sýn en vex við nánari skoðun. Brúin fellur áreynslulaust að umhverfi sínu og mjúk bylgjulögun brúarinnar er áhugaverð skírskotun í öldur hafsins. Léttleiki brúarinnar keppir ekki við náttúrulegt umhverfi og skapar fallega sýn á sjóndeildarhringinn fyrir vegfarendur beggja vegna vogarins. Hönnun brúarinnar tekur mið af því að neðra byrði hennar er sýnilegt frá stórum hluta strandlengjunnar og er því hugsað sem önnur meginásýnd brúarinnar. Göngu- og hjólaleið undir brúna sunnan megin gefur sérstakt færi á þessu sjónarhorni.

Umferð fyrir alla samgöngumáta er greið og tengingar við brúarenda vel útfærðar. Aðgreining milli ólíkra samgöngumáta er vel l eyst, stuðlar að öryggi allra vegfarenda og aðgengi fyrir alla. Kostur er að hjólandi vegfarendur geta valið milli þess að hjóla hraðar eftir stíg vestan megin sem er eingöngu fyrir hjól en austan megin er breiður stígur fyrir gangandi vegfarendur og hægari hjólaumferð.

Við göngustíg austan megin á brú eru áhugaverðar hugmyndir um áningarstaði við „Álfasteina” sem stinga sér upp úr brúargólfinu þar sem vegfarendum gefst færi á að njóta útsýnis yfir voginn og niður á hafflötinn.

Tillagan sýnir góða heildræna nálgun gagnvart öllum þáttum tæknilegrar hönnunar. Framsetning tillögunnar er mjög skýr og öllum þáttum vel lýst í máli og myndum. Efnisval brúarinnar er vel rökstutt út frá endingu og viðhaldi. Lýsingarhönnun er sannfærandi og samræmist vel formi brúarinnar. “

Teymið

EFLA

Magnús Arason
Verkfræðingur

EFLA

Kristján Uni Óskarsson
Verkfræðingur

EFLA

Berglind Hallgrímsdóttir
Verkfræðingur

EFLA

Nína Gall Jörgensen
Verkfræðingur

EFLA

Guðrún María Guðjónsdóttir
Verkfræðingur

EFLA

Andri Gunnarsson
Verkfræðingur

EFLA

Baldvin Einarsson
Verkfræðingur

BEAM Architects

James Marks
Arkitekt

BEAM Architects

Keith Brownlie
Arkitekt

EFLA

Ómar Ingþórsson
Landslagsarkitekt

EFLA

Svana Rún Hermannsdóttir
Landslagsarkitekt

KSLD

Kevan Shaw
Lýsingarhönnuður

KSLD

Sara Tobalina del Val
Lýsingarhönnuður

EFLA

Þröstur Thor Bragason
Miðlunarfræðingur

Sjá innsendingu teymis

Sækja PDF