Auglýst hefur verið eftir tilboðum í gerð rammasamnings um uppbyggingu innviða fyrir Borgarlínuna. Á meðal helstu verkþátta eru gatnagerð, jarðvinna, veituframkvæmdir, blágrænar ofanvatnslausnir, gangstéttagerð, landmótun, uppsetning lýsingar og umferðarmerkja. Áætlað heildar umfang rammasamningsins er um 60 milljarðar króna án virðisaukaskatts.
Samkvæmt útboðslýsingu er stefnt að því að semja við allt að sjö bjóðendur til fjögurra ára með heimild til framlengingar um fjögur ár til viðbótar, eitt ár í senn. Nánari lýsing á Borgarlínunni, rammasamningi og fyrirhuguðum framkvæmdum er að finna í útboðsgögnum sem eru aðgengileg á útboðsvef verkkaupa. Útboðsvefur- Borgarlínan Rammasamningur
Áður en til úthlutunar verkefna kemur verður gerð ítarleg verklýsing fyrir hvert verkefni þar sem verður að finna nánari lýsingu á einstökum verkþáttum og tilboðsskrá.
Borgarlínan er eitt megin verkefni Samgöngusáttmálans sem ríkið og sveitarfélögin sex á höfuðborgarsvæðinu standa að og varðar hagsmuni fjölmargra. Því er lögð rík áhersla á að framkvæmdir verði unnar af nærgætni og í öflugu samstarfi við eigendur fyrirtækja, íbúa, veitufyrirtæki og aðra aðila sem málið varðar. Nauðsynlegt er að framkvæmdum verði hagað með það að markmiði að lágmarka röskun, tryggja öryggi og uppfylla ströng fagleg gæðaviðmið. Skilvirk áætlanagerð og samhæfing allra aðila verður mikilvægur hluti af skyldum verktaka.
Kynningarfundur 6. maí
Væntanlegum bjóðendum gefst kostur á að sækja kynningarfund um þau verkefni Borgarlínunnar sem falla undir rammasamninginn. Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 6. maí 2025 kl. 15 á skrifstofu Betri samgangna í Hafnarstræti 7, 101 Reykjavík. Bjóðendur skulu tilkynna komu sína á netfangið sigurdur@betrisamgongur.is fyrir dagslok 5. maí 2025.