Hönnun­arteymi valin í samkeppni um brú yfir Fossvog

Matsnefnd á vegum Reykjavíkurborgar, Kópavogsbæjar og Vegagerðarinnar hefur valið sex hönnunarteymi til að taka þátt í samkeppni um hönnun brúar yfir Fossvog. Alls bárust umsóknir frá 17 hópum og voru þeir allir metnir hæfir til þátttöku í keppninni. Teymin sem valin voru eru fjölbreytt að samsetningu. Eitt teymið er al-íslenskt, annað er danskt og það þriðja er belgískt – hollenskt. Síðan eru þrjú teymi með ólíkri samsetningu íslenskra og erlendra samstarfsaðila. Teymin sem valin voru til þátttöku í samkeppninni eru:

·Strendingur ehf. með ARUP verkfræðistofu, Knight Architects og Landhönnun

·Efla hf. með Studio Granda

·VSÓ ráðgjöf með Buro Happold, Explorations Architects og Trípóli.

·Wilkinson Eyre með COWI, Basalt arkitektum, Mannvit, Dagný Land-Design og Speirs+Major.

·Ramboll A/S með Dissing+Weitling arkitektum

·Ney & Partners í samstarfi við Alternance architecture, Resource, H+N+S Landscapsarchitecten, Teikn og Magic Monkey

Í framhaldi munu þeir sem valdir voru til þátttöku í samkeppninni fá senda keppnislýsingu þegar lögbundinn frestur er runninn út og í kjölfarið verður gerður bindandi samningur við þá um þátttöku í samkeppninni. Búast má við að niðurstaða í samkeppninni liggi fyrir í maí 2020.

Í auglýstri tillögu að deiliskipulagi er gert ráð fyrirum 270 m langri brú yfir voginn frá Kársnesi, nánar tiltekið frá norðurenda Bakkabrautar að flugbrautarenda Reykjavíkurflugvallar. Markmið tillögunar er að bæta samgöngutengingar milli Reykjavíkur og Kópavogs og styðja við vistvæna samgöngukosti. Brúin verður fyrir umferð gangandi, hjólandi og almenningssamgöngur. Tillagan gerir einnig ráð fyrir landfyllingu undir brúarendum beggja megin.