Fossvogsbrú – vel ígrunduð hönnun

Hönnun og fyrirkomulag umferðar á Fossvogsbrú er vel ígrundað og tekur mið af þörfum og upplifun allra sem munu eiga leið um hana, hvort sem er gangandi, hjólandi eða með Borgarlínunni. Um er að ræða lykilatriði í vinningstillögunni Öldu í hönnunarsamkeppni sem haldin var um brú yfir Fossvog. Á fyrstu hönnunarstigum var tekið til skoðunar að hafa göngustíg vestan á brúnni og að vel athuguðu máli varð sú hönnun sem unnið er með fyrir valinu. EFLA, ásamt BEAM Architects, varð hlutskörpust í hönnunarsamkeppni um nýja brú yfir Fossvog.

Fossvogsbrú er hluti af uppbyggingu Borgarlínunnar en mun einnig nýtast vel virkum ferðamátum, þ.e. gangandi og hjólandi vegfarendum. Samkvæmt umferðartölum og umferðarspá er stærstur hluti gangandi við báða brúarenda austan brúarinnar og æskilegt er að gera þeim kleift að komast leiðar sinnar án þess að þurfa að þvera sérrými Borgarlínunnar. Þar spilar umferðaröryggi einnig stórt hlutverk.

Göngustígurinn austan á brúnni lokar 5 km göngu- og hlaupaleið um Fossvoginn. Þaðan er fallegt útsýni yfir fjölbreytt útivistarsvæði og strandlengju Fossvogs. Af áningarstöðum við göngustíginn á brúnni er einnig ágætt útsýni til vesturs út Skerjafjörð, jafnvel þótt þaðan sé horft yfir sérrými Borgarlínunnar og hjólastíg.

Hjólastígur er staðsettur að vestanverðu til að fjarlægja hraðskreiða hjóla- og rafskútuumferð af göngusvæðinu og einnig til að styrkja við norður-suður hjólaferðir eftir strandlengju höfuðborgarsvæðisins. Þá hefur sú staðsetning fæstar þveranir fyrir hjólandi vegfarendur við Borgarlínuna á Kársnesi. Ekki er litið svo á að hönnunin forgangsraði hjólreiðafólki fram yfir gangandi vegfarendur, heldur er henni ætlað að skapa betra og öruggara umhverfi fyrir gangandi vegfarendur og skila ávinningi fyrir báða ferðamáta.

Hönnun svæðisins við brúna gefur kost á góðu útsýni til vesturs báðum megin brúar. Útsýnisstaðirnir við brúarendana eru hannaðir sérstaklega til þess nýta útsýni að Bessastöðum, Snæfellsjökli og sólsetrinu yfir Skerjafirði

Fossvogsbrú er hluti af verkefnum sem heyra undir Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins sem gerður var milli ríkisins og sveitarfélaganna sex á höfuðborgarsvæðinu árið 2019. Betri samgöngur ohf., Vegagerðin, Reykjavíkurborg og Kópavogsbær vinna saman að undirbúningi brúarinnar í samstarfi við EFLU.