Fjögur tilboð bárust í landfyllingar Fossvogsbrúar

Fjögur tilboð bárust í landfyllingar og sjóvarnir vegna nýbyggingar brúar yfir Fossvog. Tilboð voru opnuð í vikunni, nánar tiltekið 10. desember. Verkið er hluti af 1. lotu Borgarlínunnar og uppbyggingu fyrir þróunarsvæði í Skerjafirði. Því skal að fullu lokið 1. nóvember 2026.

Tilboð bárust frá Íslensku aðalverktökum, Ístaki, Suðurverki og Loftorku og Gröfu og grjóti. Þrjú tilboðanna eru undir áætluðum verktakakostnaði. Vegagerðin mun nú fara yfir tilboðin þar sem meðal annars verður kannað hvort tilboðin standist útboðsskilmála. Að því loknu verður gengið til samninga og því næst hefst undirbúningur fyrir framkvæmdir.

Þá bárust fimm tilboð í eftirlit og ráðgjöf vegna landfyllinganna. Bæði þessi útboð voru auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Eftirtaldir lögðu fram tilboð innan tilboðsfrests: Norconsult, VBV, VSB verkfræðistofa, VSÓ Ráðgjöf og  Verkís. Þann 19. desember 2024 verður bjóðendum tilkynntar niðurstöður stigagjafar og verðtilboð hæfra bjóðenda.

Sjá nánar hér:

Opnun tilboða vegna landfyllinga

Opnun tilboða vegna eftirlits og ráðgjafar