3. október 2023Erindi Jarrett Walker frá árinu 2015. Abundant Access: Planning Public Transport that Builds Freedom, Prosperity and Sustainability.
Jarrett Walker hefur komið að skipulagi fjölda almenningssamgöngukerfa víðsvegar í heiminum. SSH (Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu) hafði frumkvæði að því að fá Jarrett til landsins til aðstoðar við skipulag Borgarlínu, nýs hágæða almenningssamgöngukerfis. Erindi Jarrett markaði upphaf þeirrar vinnu. Það var haldið í lok samgönguviku, þriðjudaginn 22. september 2015, í Salnum Kópavogi.
Hér má sjá upptöku af erindi Jarrett Walker; Abundant Access: Planning Public Transport that Builds Freedom, Prosperity and Sustainability.
Gísli Marteinn Baldursson stýrði fundinum og kynnti Jarrett til leiks.