Samningar undirritaðir um hönnun á fyrstu lotu Borgar­línunnar

Fjölþjóðlegt hönnunarteymi færir verðmæta reynslu

Samningar um hönnun á fyrstu lotu Borgarlínunnar, sem verður um 14,5 km að lengd, hafa nú verið undirritaðir í húsakynnum Vegagerðarinnar. Alþjóðlega verkfræðifyrirtækið Artelia Group mun leiða verkefnið í samstarfi við verkfræðistofurnar MOE og Hnit og arkitektastofurnar Gottlieb Paludan og Yrki arkitektar, en teymið var hlutskarpast í hönnunarútboði sem fram fór innan evrópska efnahagssvæðisins.

,,Það er okkur mikið fagnaðarefni að fá svona reynslumikið hönnunarteymi að Borgarlínuverkefninu en reynsla þeirra mun hjálpa okkur að ná markmiðum samgöngusáttmálans um breyttar ferðavenjur og kolefnishlutlaust borgarsamfélag en til gamans má geta að Artelia Group, sem mun leiða teymið, hefur hannað yfir 175 km af BRT og 255 af léttlestarkerfum víða um veröld,“ segir Hrafnkell Á. Proppé, forstöðumaður Verkefnastofu Borgarlínunnar hjá Vegagerðinni.

Mikilvægt að auka samtalið

Umsagnartíma frumdraga lýkur næst komandi mánudag þann 31.maí á samráðsgátt stjórnvalda, og verður því byrjað á að skoða þær ábendingar sem hafa borist og leggja línurnar um þróun tillaganna í samvinnu við alla hlutaðeigandi. Hrafnkell segir mörg skref vera framundan áður en endanlegar tillögur að útfærslu fyrstu lotu liggja fyrir.

„Við erum með alveg nýtt verkefni í okkar samhengi þó flest okkar þekki hágæða almenningssamgöngur frá öðrum löndum. Það er því nauðsynlegt að við nýtum hönnunarferlið til að auka samtalið um verkefnið og þær breytingar á borgarumhverfinu og samgöngutækifærum sem það boðar. Í þessu ljósi er ákaflega mikilvægt að við njótum aðstoðar reynslumikils hönnunarteymis sem hefur komið að fjölda sambærilegra verkefna og getur hjálpað okkur að setja viðfangsefnið og áskoranirnar í stærra samhengi,“ segir Hrafnkell sem er fullur tilhlökkunar enda spennandi tímar framundan.

„Við munum nota sumarið í undirbúning og skerpa línur, svo með haustinu og frekari afléttingum ferðatakmarkanna hlökkum við til að taka á móti verkefnastjóra Artelia sem gerir ráð fyrir að vera staðsett hér á landi. Skiptir það miklu máli til að flétta farsællega saman reynslu erlendra aðila við íslenskt samfélag sem og að tryggja mikilvæga þekkingaryfirfærslu.  Við gerum svo ráð fyrir að fyrstu afurðir úr hönnunarvinnu Artelia og samstarfsaðila muni liggja fyrir í haust.“

 

Artelia Group mun leiða teymið en það er alþjóðlegt verkfræðifyrirtæki sem starfar í 40 löndum og hefur yfir 6100 starfsmenn. Artelia hefur mikla reynslu og þekkingu af hraðvagnakerfum (BRT) og hefur hannað yfir 175 km af BRT og 255 af léttlestarkerfum víða um veröld, meðal annars Pau BRT kerfið í Pýreneafjöllunum og Lens BRT kerfið í N-Frakklandi.

MOE eru sérfræðingar í sjálfbærum innviðaverkefnum, og sáu m.a. um grunn- og forhönnun fyrir léttlestarkerfið í Kaupmannahöfn. Danska stofan Gottlieb Paludan Architects er þekkt fyrir að hanna lausnir fyrir innviði á borð við léttlestir, hraðvagnakerfi og umferðamiðstöðvar víða um heim.
Þá eru Yrki arkitektar og Hnit lykilaðilar í teyminu og með nauðsynlega staðbundna þekkingu. Hnit verkfræðistofa sérhæfir sig í alhliða verkfræðiráðgjöf á sviði mannvirkjagerðar og Yrki arkitektar bjóða upp á alhliða þjónustu á sviði arkitektúrs og skipulags.

Um Borgarlínuna:
Borgarlínan er hluti af samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins sem ríkið og sex sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, Garðabær, Hafnarfjörður, Kópavogur, Mosfellsbær, Reykjavík og Seltjarnarnes, undirrituðu árið 2019. Sáttmálinn er tímamótasamkomulag um metnaðarfulla uppbyggingu á samgönguinnviðum og almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu til fimmtán ára.

Á ljósmynd eru, frá vinstri: Kristinn Guðjónsson, framkvæmdastjóri Hnit, sem einnig undirritaði samninginn fyrir hönd erlendu samstarfsaðilanna vegna ferðatakmarkanna, Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar og Sólveig Berg Emilsdóttir frá Yrki arkitektum.