Borgarlínan í stóru hlutverki í framtíð­ar­hverfi

Betri samgöngur ohf. og Ríkissjóður hafa samið um að félagið taki við landsvæðinu við Keldur og Keldnaholt, ásamt réttindum og skyldum sem því tengjast. Landið er um 116 hektarar, eða að svipaðri stærð og miðborg Reykjavíkur að flatarmáli.

Markmiðið er að þar rísi nýtt og vandað framtíðarhverfi með áherslu á vistvænar samgöngur. Þjónusta Borgarlínunnar er ein helsta forsenda þess að hægt sé að umbreyta Keldum og Keldnaholti í þétta og blandaða byggð með íbúðum, þjónustu og atvinnuhúsnæði. Áætlaður ferðatími með Borgarlínunni milli Keldna og Lækjartorgs er um 20 mínútur.

Stjórn Betri samgangna ohf., ásamt Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra og Davíð Þorlákssyni, framkvæmdastjóra Betri samgangna við undirritun samningsins.

Stjórn Betri samgangna ohf., ásamt Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra og Davíð Þorlákssyni, framkvæmdastjóra Betri samgangna við undirritun samningsins.

Davíð Þorláksson, framkvæmdastjóri Betri samgangna, og Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra undirrituðu samninginn. Í samvinnu við skipulagsyfirvöld munu Betri samgöngur vinna að því að hámarka virði landsins og uppbyggingarmöguleika eins og kostur er með hagkvæmu skipulagi og nýtingarhlutfalli sem samræmist áformum um þéttingu byggðar á samgöngu- og þróunarási Borgarlínunnar. Um einstæðan samning er að ræða, þar sem verðmætt land í eigu ríkisins verður nýtt til að standa undir uppbyggingu á mikilvægum innviðum. Allur ábati af þróun og sölu landsins verður nýttur til verkefna Samgöngusáttmála ríkisins og sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu sem var undirritaður 2019.

Kaupverðið er 15 milljarðar króna, eins og Samgöngusáttmálinn mælti fyrir um, og er það greitt með útgáfu nýrra hluta í Betri samgöngum. Ef ábati verkefnisins verður umfram 15 ma.kr. munu þeir viðbótar fjármunir einnig renna til verkefnisins.

Alþjóðleg samkeppni undirbúin

Betri samgöngur hafa í samstarfi við skipulagsyfirvöld unnið að undirbúningi þróunar svæðisins frá því um mitt síðasta ár. Snemma á nýju ári verður farið í alþjóðlega samkeppni um þróunar- og uppbyggingaráætlun fyrir Keldur og Keldnaholt í samvinnu félagsins og Reykjavíkurborgar. Í framhaldinu verður unninn rammahluti Aðalskipulags Reykjavíkur, deiliskipulags- og uppbyggingaráætlanir á grunni verðlaunatillögu í samkeppninni. Stefnt er að því að hægt verði að þróa deiliskipulag fyrir fyrstu uppbyggingarreitina á svæðinu haustið 2023.